Heyrðu förinni er heitið í útlandið krakkar mínir

Nei í sannleika sagt er það ekki alveg komið í ljós, svona er flugmannslífið. Ernst er sem sagt að farað fá fastann base. Við erum að reynað fá Bretland, að hann yrði þá að fljúga frá Stansted. Við fáum að vita það um miðjann júlí og verðum flutt rúmri viku síðar.
Hann er núna beisaður í Róm, búnað vera þar síðan um miðjann maí.
Ég skrapp til hans í síðustu viku, það er svo fallegt þarna. Allt gamalt og krúttlegt

En eins æðislegt og það er að vera túristi á Ítalíu er svakalega erfitt að búa þar ef maður er ekki altalandi á ítölsku. Sjónvarpið er talsett, öll skilti eru bara á ítölsku og flestir heimamenn ekki góðir í ensku.
Svo að við viljum helst flytja þanngað sem enska er fyrsta tungumál, allavega til að byrja með.

Ekki að það skipti miklu máli fyrir Ernst frá hvaða flugvelli hann flýgur heldur meira hvað get ég farið að gera ef ég tala ekki tungumálið.

Reyndar veit ég ekkert hvað mig langar... mig þykir ofboðslega vænt um vinnuna mína og hefði vilja halda henni áfram en löngunin í að hefja loks sambúð með manninum sem ég elska er mun sterkari. :þ